System.Exception: StaticFileFormInstances::SelectOne::Error occured. ---> System.InvalidCastException: Specified cast is not valid. at Disill.Modules.StaticFileForm.DB.StaticFileFormInstances.SelectOne() --- End of inner exception stack trace --- at Disill.Modules.StaticFileForm.DB.StaticFileFormInstances.SelectOne() at Disill.Modules.StaticFileForm.StaticFileForm.CreateChildControls() Nánar : zonet.is

Sumarfrí- Ómar lands og þjóðar


“Sumarfrí” er annar hljómdiskurinn í röðinni “Ómar lands og þjóðar “. Hér er finna lög og ljóð eftir Ómar Ragnarsson, bæði ný og gömul sem öll fjalla um um land og þjóð. Ómar hefur, með aðstoð sjónvarpsmyndavélarinnar, verið duglegri en nokkur annar á undanförnum áratugum að sýna okkur landið okkar í allri sinni dýrð og veita okkur innsýn í líf þjóðarinnar.
 “Ómar lands og þjóðar” var yfirskrift fjörutíu og fjögurra laga og ljóða eftir Ómar og  höfðu tuttugu og níu lög verið myndskreytt í sjónvarpi. Fyrsti hlutinn “Kóróna landsins” kom út haustið 2003 fyrst á hljómdiski og síðan á myndbandi og mynddiski og öðlaðist miklar vinsældir.
Nú eru lögin orðin fjörutíu og níu og myndskreytingarnar þrjátíu, Ómar átti nefnilega sjálfur myndir til að myndskreyta eitt af nýju lögunum í safninu sínu og fékk með góðfúslegu leyfi Senu útgáfu, engan annan en Bubba Morthens, vin sin til margra ára, til að syngja á móti sér í því lagi.
Þar vekja þeir félagar landsmenn til umhugsunar í mögnuðum brag sem kallast “Landi og lýð til hagsældar”. Þar syngur Friðrik Ómar Hjörleifsson, einn af bestu söngvurum yngri kynslóðarinnar, allar raddirnar, fimm talsins, í viðlaginu og svipað gerir hann í laginu “Framhaldið af Maríu”.
Sem fyrr er fjöldi landsþekktra flytjenda og útsetjara sem koma Ómari til aðstoðar á diski þessum. Flytjendur eru auk Bubba Morthens, Björgvin Halldórsson, Pálmi Gunnarsson, Páll Óskar Hjálmtýsson, Friðrik Ómar Hjörleifsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Matthías Matthíasson, Bjarni Arason og Garðar Cortes. Útsetjarar og meginflytjendur hljóðfæraleiks á þessum diski eru Vilhjálmur Guðjónsson, Þórir Baldursson, Gunnar Þórðarson og Kristján Edelstein.

Júní 2006
Óttar Felix Hauksson